Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 1000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

FRÉTTIR

Hraðakstur á Þingvallavegi

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Mosskóga. Á einni …

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Brot 131 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við álverið í Straumsvík. …

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ

Brot 110 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesbrú. Á einni …

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sér um löggæslu í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnes og Kjósarhrepp. Hjá embættinu starfa rétt um 300 lögreglumenn og tæplega 90 í öðrum störfum.

Starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er fjölþætt og skiptist í tvö megin svið; Löggæslusvið og Rannsóknar og ákærusvið. Undir þessum sviðum er svo frekari skipting.

Sími Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er 444 1000 og hægt er að hafa samband í gegn um abending@lrh.is

Opið er frá kl. 8-15 alla virka daga í móttöku/afgreiðslu lögreglustöðvanna á Flatahrauni 11 í Hafnarfirði, Dalvegi 18 í Kópavogi og á Vínlandsleið 2-4 í Reykjavík.

Opið er frá kl. 8.15-16 í móttöku/afgreiðslu þjónustudeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Hverfisgötu 115 í Reykjavík, nema föstudaga þegar opið er 8:15-12.

Óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu staðsett á Vínlandsleið 2-4.
Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13 – 15.30, lokað er á föstudögum. Tilkynningar um týnda muni á höfuðborgarsvæðinu má senda á netfangið: oskilamunir@lrh.is eða lostandfound@lrh.is

Ef þú þarft skjóta aðstoð lögreglu hringdu í 112

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Það að gæta trúnaðar er einn af máttarstólpum okkar starfs, stundum þannig að það er erfitt að mega ekki deila meira af okkar störfum með ykkur öllum hinum. Þessvegna er ánægjulegt að geta deilt með ykkur núna var að koma út afar áhugaverður þáttur sem unninn er af Jóhannesi Kr. Kristjánssyni, blaðamanni á Heimildinni, um störf Kynferðisbrotadeildarinnar okkar.
Störf deildarinnar eru vandmeðfarin og stundum umdeild, enda snýr starf þeirra að þeim brotum sem standa hjarta okkar næst - og særa það sem tekur oft mestan tíma að gróa. Vegna þessa leggur LRH afar mikla áherslu á að vanda vinnu við rannsóknir slíkra brota.
Við hvetjum alla til að hlýða á þennan þátt og fræðast um störf okkar fólks.
Hlekkur á þáttinn er hér efst í ummælum - hér að neðan. 👇
... Sjá meiraSjá minna

7 CommentsComment on Facebook

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvernig gengur rannsóknin á stolnu fósturvísunum?

löggan ætti að hafa meira vald til að sýna almenning nákvæmlega það sem er að gerast í okkar samfélagi. íslenska löggan ætti að horfa til noregs og danmörku hvað það varðar. þar sem það er aldrei fjallað náklvæmlega um hlutina alltaf farið framhjá sannleikanum í flestum tilvikja til að ''ýta'' ekki undir hræðslu í samfélaginu. þar sem tilfinningar skiptir meira máli í dag en sannleikurinn, og eftir allt saman þá vinnur lögreglan fyrir almenning

Okkar fólk.

Þetta trúnaðar þvæl er náttúlega bara mesti brandarinn 🤡💩

View more comments

Þessa dagana eru gæsirnar að vappa um, soltnar eftir flugtúr og kannski tímamismunin líka.
Förum varlega og sýnum þessum fiðruðu vinum okkar þolinmæði.
Góða helgi frá okkur sem erum á vaktinni.
... Sjá meiraSjá minna

Þessa dagana eru gæsirnar að vappa um, soltnar eftir flugtúr og kannski tímamismunin líka.
Förum varlega og sýnum þessum fiðruðu vinum okkar þolinmæði. 
Góða helgi frá okkur sem erum á vaktinni.

38 CommentsComment on Facebook

Svo rölta þær yfir göturnar í rólegheitum því það er svo dýrt að fljúga innanlands!😉

Borgargæsir halda til hér á veturna, sennilega um 2000 stk. Margar verða fyrir bíl. Takk fyrir að minna ökumenn á að aka varlega. Mikilvægt að setja upp fleiri skilti sem minna á fuglana sérstaklega um varptímann .TAKK

Eru þær ekki hættar að fara héðan, sé þær hér allan veturinn

Ég þurfti að stoppa báðar suðurreinarnar (brautirnar í bæinn) á Vesturlandsveginum við Bauhaus í fyrra. 2 gæsir að rölta yfir með 10 - 15 unga. Ég var ekki beint lögguleg í háhæluðum skóm og síðum kjól. Að vísu allt æpandi bleikt, - sem hjálpaði til.

Sæt saga sem ég varð að deila með ykkur. Maðurinn minn var á leiðinni í vinnuna snemma í morgun og þá var gæsahópur á leið yfir Hringbrautina á móts við Njarðargötu í átt að Hljómskálagarðinum. Kannski á leið í sína vinnu, hver veit. En allavegana ein í hópnum var ekkert að flýta sér heldur lagðist bara niður á miðja götuna. Sem betur fer var lítil umferð enda klukkan ekki nema rúmlega sex en maðurinn minn þurfti að bregða sér út úr bílnum og biðja hana, gæsina, góðfúslega að leggja sig annars staðar. Meðfylgjandi er mynd sem ég fann á vefnum en það hefði nú verið gaman ef Siggi hefði smellt einni mynd af þessu.

View more comments

Á stóru heimili þarf að gera klárt fyrir sumarið - þar á meðal er þjálfun þeirra sem munu sinna störfum á lögreglumótorhjólum. Starf mótorhjólalöggu er nefnilega flóknara en margir telja - snýst um meira en vera glæsileg og til fyrirmyndar á skínandi mótorfák! Raunar er það eitt hættulegasta starf innan lögreglu og því mikilvægt að þjálfun sé regluleg og vönduð.
Á dögunum var haldið nýliðanámskeið fyrir þau starfsréttindi að fá að aka lögreglumótorhjóli. Námskeiði sátu 6 lögreglumenn og stóðu sig afar vel eins og sjá má á myndbandinu. Námskeiðið spannar 6 daga og er afar fjölbreytt - stöðvun ökutækja, fylgdarakstur, neyðarakstur og margt fleira.
Við óskum þessu nýja bifhjólafólki okkar góðs gengis í störfum sínum og biðjum ykkur um að vinka þeim með brosi þegar þið sjáið þau í umferðinni.
... Sjá meiraSjá minna

20 CommentsComment on Facebook

Eru 6 dagar alveg nóg til þess að læra neyðarakstur og fylgi akstur á mótorhjóli? Mér finnst þetta tiltölulega lítill tími til þess læra undir "hættulegasta" starf innan lögreglunnar?

hvenar er svo námskeiðið í mannlegum samskiptum ? virðist oft sem sumir hafi ekki hlustað á þeim námskeiðum

Congratulations, this is how you drive a police motorcycle.

Glæsilegt. Ég er ekki viss um að ég næði þessum keilum á minni flottu hondu shadow. Grunar nú að löggu hjólin séu mikið liprari 😎 en það er nauðsinlegt að halda sér í góðri æfingu 👌

Skemmtilegasta starf í heimi….

View more comments

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram